UNHCR, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, fagnar aðild Íslands að samningum Sameinuðu þjóðanna um ríkisfangsleysi sem eru helstu alþjóðlega sáttmálarnir til að sporna gegn ríkisfangsleysi.
„Við fögnum aðild Íslands, sem færir heiminn skrefi nær því að binda enda á ríkisfangsleysi,“ sagði Pascale Moreau, framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Í Evrópu búa yfir 500.000 ríkisfangslausir einstaklingar. Heildarfjöldi ríkisfangslausra á heimsvísu er óþekktur. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur tilkynnt um 4,2 milljónir ríkisfangslausra einstaklinga í 79 löndum um allan heim út frá þeim gögnum sem liggja fyrir. Þó er talið að fjöldinn sé miklu meiri.
Með aðild Íslands að samningunum frá 1954 og 1961 verður heildarfjölda aðildarríkja 95 að þeim fyrrnefnda og 76 að þeim síðarnefnda.
Nú eru 60 ár liðin frá því að samningurinn frá 1961 var gerður og því vonar Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna að fleiri lönd fylgi fordæmi Íslands og gerist aðilar að samningum Sameinuðu þjóðanna um ríkisfangsleysi á þessu ári.
Árið 2014 hóf Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hina alþjóðlegu #IBelong-herferð til að binda enda á ríkisfangsleysi fyrir árið 2024. Síðan þá hafa 12 ríki gerst aðilar að samningnum frá 1954 um stöðu ríkisfangslausra og 15 hafa gerst aðilar að samningnum frá 1961 um að draga úr ríkisfangsleysi.
Deila á Facebook Deila á Twitter