Fjöldi þeirra sem flúði stríð, ofsóknir og átök fór yfir 70 milljónir árið 2018. Þetta er mesti fjöldi sem Flóttamannastofnun SÞ hefur séð á þeim næstum 70 árum sem hún hefur starfað.
© UNHCR/Andrew McConnell
Gögn úr árlegri skýrslu UNHCR Þróun á heimsvísu, sem birt er í dag, sýna að nú hafa að minnsta kosti 70,8 milljónir einstaklinga verið þvingaðir á flótta. Til að setja þetta í samhengi er þetta tvöfaldur fjöldi miðað við fyrir 20 árum síðan, 2,2 milljónum fleiri en fyrir ári og samsvarar íbúafjölda sem er mitt á milli Taílands og Tyrklands.
Talan 70,8 milljónir er varlega áætluð, sérstaklega þar sem neyðarástandið í Venesúela endurspeglast einungis að hluta í henni. Alls hafa um 4 milljónir einstaklinga frá Venesúela yfirgefið land sitt, samkvæmt gögnum frá yfirvöldum í þeim löndum sem tekið hafa við þeim, sem gerir þetta meðal stærstu nýlegu flóttamannavanda veraldar. Þótt meirihluti þeirra þurfi á alþjóðlegri flóttamannavernd að halda hefur aðeins um hálf milljón tekið það skref að óska formlega eftir hæli.
„Það sem við sjáum í þessum tölum er enn frekari staðfesting á langtíma fjölgun þeirra sem þurfa öryggi frá stríði, átökum og ofsóknum. Þó að orðræða um flóttafólk og farandfólk sé oft umdeild sjáum við líka mikið af örlæti og samkennd, sérstaklega í samfélögum sem hýsa mikinn fjölda flóttamanna. Við sjáum líka áður óþekkta þátttöku nýrra aðila svo sem í þróunarmálum, einkafyrirtæki og einstaklinga, sem endurspegla ekki aðeins heldur framkvæma anda Sáttmála um málefni flóttamanna,“ segir flóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Filippo Grandi. „Við þurfum að byggja á þessum jákvæðu dæmum og efla enn frekar samkennd okkar með þeim þúsundum saklausra einstaklinga sem á hverjum degi eru þvingaðir á flótta frá heimilum sínum.“
Þrír meginhópar eru innan þessara 70,8 milljóna sem talað er um í skýrslunni um Þróun á heimsvísu. Sá fyrsti er flóttafólk, en með því er átt við fólk sem hefur neyðst til að flýja land sitt vegna átaka, stríðs eða ofsókna. Árið 2018 var fjöldi flóttamanna á heimsvísu 25,9 milljónir, 500.000 fleiri en árið 2017. Innan þessarar tölu eru 5,5 milljónir flóttamanna frá Palestínu sem eru undir vernd Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna.
Annar hópurinn er hælisleitendur – fólk sem er utan heimalands síns og nýtur alþjóðlegar verndar, en bíður niðurstöðu umsóknar sinnar um stöðu flóttamanns. Í lok árs 2018 voru 3,5 milljónir hælisleitenda í heiminum.
Þriðji og stærsti hópurinn, 41,3 milljónir, er fólk sem er á vergangi á öðrum svæðum innan síns eigin heimalands, hópur sem gjarnan er vísað til sem vegalaust fólk innan eigin lands eða IDP (Internally Displaced People).
Fjöldi fólks á flótta og vergangi heldur áfram að vaxa hraðar en lausnir finnast fyrir fólk sem fer á vergang. Besta lausnin fyrir flóttafólk er að geta snúið aftur heim sjálfviljugt, í öryggi og með reisn. Aðrar lausnir væru að verða hluti af samfélagi móttökulandsins eða setjast að í þriðja landi. Þrátt fyrir það settust aðeins 92.400 flóttamenn að í þriðja landi árið 2018, innan við 7 prósent af þeim sem biðu eftir því. Um 593.800 flóttamenn gátu snúið aftur heim, og 62.600 fengu ríkisborgararétt.
„Í hverjum flóttamannavanda, hvar sem hann á sér stað og hve lengi sem hann hefur staðið, verður að vera stöðug áhersla á lausnir og að fjarlægja hindranir í vegi þess að fólk geti snúið aftur heim,“ sagði Grandi. „Þetta er flókið verk sem UNHCR er stöðugt að vinna að en sem kallar líka á að öll lönd taki höndum saman með hagsmuni allra í huga. Þetta er ein mesta áskorun okkar tíma.“
Þróun á heimsvísu – 8 staðreyndir um flóttafólk sem þú þarft að vita
Deila á Facebook Deila á Twitter