Starfsfólk Flóttamannastofnunarinnar starfar um allan heim. Árið 2025 var Flóttamannastofnunin með starfsemi í 135 löndum, allt frá stórum höfuðborgum til afskekktra og oft á tíðum hættulegra staða.
Hvar sem flóttafólk sest að, störfum við náið með stjórnvöldum til að tryggja að staðið sé við samninginn um réttarstöðu flóttamanna frá 1951.
Meirihluti starfsliðs Flóttamannastofnunarinnar, um það bil 90 prósent þess, starfar á vettvangi við að veita mannúðaraðstoð og vernd, aðstoð við flóttafólk, vegalausa í eigin landi og aðra þá einstaklinga sem þurfa á aðstoð hennar að halda.
Annað starfsfólk er í höfuðstöðvum okkar í Genf og í alþjóðlegum þjónustumiðstöðvum í Búdapest, Kaupmannahöfn og Amman, og styður þar við starfsemi stofnunarinnar.