Ein milljón barna á flótta til marks um dapurleg þáttaskil átakanna í Sýrlandi
Ein milljón sýrlenskra barna hefur neyðst til að flýja heimaland sitt sem flóttamenn, en átökin í Sýrlandi hafa nú staðið yfir í um þrjú ár.
„Milljónasta barnið á flótta er ekki bara einhver tala,“ segir Anthony Lake, framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. „Um er að ræða raunverulagt barn sem hefur verið rifið frá heimili sínu, jafnvel frá fjölskyldu sinni einnig, og hefur þurft að takast á við hörmungar sem við getum aðeins reynt að öðlast skilning á.“
„Skömmin er okkar allra, því á meðan við reynum að lina þjáningar þeirra sem stríðið hefur haft áhrif á, þá ber alþjóðasamfélagið ábyrgð á barninu, en hefur brugðist því. Við eigum að staldra við og spyrja okkur hvernig við getum með góðri samvisku haldið áfram að bregðast börnunum frá Sýrlandi“.
„Það sem er í húfi er ekkert minna en líf og heilsa heillar kynslóðar af saklausu fólki,“ segir Flóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, António Guterres. „Ungt fólk í Sýrlandi er að missa heimili sín, fjölskyldu sína og framtíð. Þrátt fyrir að þau finni öruggt skjól handan landamæra, þá hafa þau orðið fyrir áföllum, kljást við þunglyndi og þurfa ástæðu til að halda í vonina.“
Stofnanirnar tvær segja helming allra flóttamanna frá átökunum í Sýrlandi vera börn. Flest hafa flúið til Líbanon, Jórdaníu, Tyrklands, Íraks og Egyptalands. Sýrlendingar flýja jafnframt í auknum mæli til Norður-Afríku og Evrópu.
Nýjustu tölur sýna að meira en 740.000 sýrlensk börn á flótta eru börn yngri en 11 ára.
Samkvæmt Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna hafa um 7.000 börn verið drepin í stríðinu í Sýrlandi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna telja að meira en tvær milljónir barna séu á vergangi innan landamæra Sýrlands.
Rótleysi vegna flutninga, hræðsla, streita og andlegt álag er aðeins hluti af því sem mörg börn takast á við í stríðinu. Báðar stofnanirnar hafa einnig vakið athygli á hættunum sem steðja að börnum á flótta vegna barnavinnu, barnabrúðkaupa, mögulegrar kynferðislegrar misnotkunar og mansals. Meira en 3.500 börn í Jórdaníu, Líbanon og Írak hafa farið yfir landamæri Sýrlands ýmist fylgdarlaus eða viðskila við fjölskyldur sínar.
Eitt stærsta átak í veitingu alþjóðlegrar neyðaraðstoðar á sér nú stað, en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafa samstillt aðgerðir til aðstoðar milljónum fjölskyldna og barna sem eiga um sárt að binda vegna stríðsins.
Sem dæmi má nefna að meira en 1,3 milljónir barna, sem búa í samfélögum flóttamanna í nágrannalöndum Sýrlands, hafa hlotið bólusetningu gegn mislingum á þessu ári, með stuðningi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna og samstarfsaðila þeirra. Um 167.000 flóttabörn hafa fengið sálræna aðstoð, meira en 118.000 börn hafa getað haldið áfram námi ýmist innan eða utan formlegs skólahalds og meira en 222.000 manns hefur verið úthlutað vatnsbirgðum.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur séð um skráningu þeirra milljón barna sem nú eru á flótta og þannig auðkennt þau. Stofnunin aðstoðar jafnframt þau börn sem fædd eru í útlegð við að fá útgefið fæðingarvottorð, til að koma í veg fyrir að þau verði ríkisfangslaus. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna tryggir jafnframt að allar fjölskyldur og börn á flótta geti hafist við í öruggu skjóli.
Stofnanirnar tvær eiga hins vegar enn verk fyrir höndum. The Syria Regional Refugee Response plan gerir ráð fyrir að kostnaður vegna grunnþarfa flóttamanna fram til desember mánaðar nemi um þremur milljörðum Bandaríkjadollara, en enn sem komið er hefur aðeinst náðst að safna styrkjum fyrir 38% fjárhæðarinnar.
Kallað hefur verið eftir meira en fimm milljörðum Bandaríkjadollara til neyðaraðstoðar vegna átakanna í Sýrlandi, en mikil þörf er á að bæta menntun, heilsugæslu og aðra þjónustu fyrir börn á flótta og börn í gistisamfélögum. Þá er þörf á að styrkja og efla samstarf um greiningu þeirra barna á flótta sem eru í hættu og að veita þeim, og samfélögunum sem taka á móti þeim, aðstoð.
Frekara fjármagn er hins vegar aðeins hluti af þeim aðgerðum sem eru nauðsynlegar til að mæta þörfum barnanna.
Á sama tíma og brýnt er að auka áherslur á að finna pólitíska lausn á deilunum í Sýrlandi, þá verða aðilar að átökunum að koma í veg fyrir að almennir borgarar verði skotmörk og að börn séu látin berjast. Börn og fjölskyldur þeirra verða að geta flúið Sýrland í öryggi og landamæri verða að haldast opin.
Þeir sem virða þessar skyldur alþjóðlegs mannúðarréttar að vettugi skulu sæta ábyrgð vegna gjörða sinna, segja stofnanirnar.
Page 1 of 6
-
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna varar við afskiptaleysi og aðgerðaleysi í ljósi aukningar á þvinguðum fólksflótta
13.06.2024Heildarfjöldi fólks á flótta var 120 milljónir manna í maí 2024; átök í Súdan, í Gaza og Mjanmar hafa ollið nýjum fólksflótta og krefjast tafarlausra lausna.
-
Stríðið í Úkraínu hefur nú geisað í á þriðja ár og milljónir landsmanna búa enn við óvissu og útlegð
22.02.2024Þetta er samantekt á ummælum Philippes Leclerc, svæðisstjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Evrópu, á blaðamannafundinum í Palais des Nations í Genf á þriðjudag.
-
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi gefa út íslenskt námsefni um flóttafólk
12.09.2023Hvers vegna flýr flóttafólk heimaland sitt? Hvers vegna endar flóttafólk fjarri heimalandi sínu þegar það leitar öryggis? Og hvað er það mikilvægasta sem þú myndir taka með þér, ef þú neyddist til að flýja heimili þitt vegna stríðs, ofbeldis eða ofsókna? Í dag þurfa komandi kynslóðir að skilja og umfaðma […]
-
Fjöldi fólks, sem stökkt hefur verið á flótta í heiminum, hefur aldrei verið meiri en árið 2022. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna kallar eftir samstilltum aðgerðum.
14.06.2023Fjölgun fólks á flótta á síðasta ári skýrist af stríðinu í Úkraínu og endurskoðuðu mati á fjölda afganskra flóttamanna, auk nýrra átaka sem blossað hafa upp, sérstaklega í Súdan. Allt þetta veldur þvi að heildarfjöldinn nálgast 110 milljónir.
-
Eitt ár liðið: Stuðningur frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum mikilvægur í að hjálpa Úkraínumönnum á flótta
17.02.2023Fjárframlög frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum hefur hjálpað til við að veita nauðsynlegan stuðning við fólk sem er á flótta vegna stríðsins í Úkraínu.
-
Sögur af vettvangi: „Loftslagsbreytingar og átök valda gríðarlegri mannúðarþörf“
14.02.2023Viðtal við samstarfsmann okkar Kjartan Atla Óskarsson, í Juba, Suður-Súdan.
-
Flóttamannastofnun SÞ þakkar Íslandi stuðninginn við aðstoð og vernd á flóttafólki um allan heim
01.02.2023Á árinu 2022, tvöfaldaði Ísland fjárframlag sitt til UNHCR, Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.
-
Öflugur og tímanlegur stuðningur við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur hjálpað milljónum landflótta Úkraínumanna
19.09.2022Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin brugðust hratt við og veittu stuðning sem gerði Flóttamannastofnuninni kleift að veita bæði tafarlausa og langvarandi aðstoð við fólk sem flýr stríðið í Úkraínu.
-
Milljónir barna og ungmenna á flótta eru enn utan skóla – Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna kallar eftir því að þau fái aðgang að menntakerfum
13.09.2022Aðgangur að öllum menntastigum, allt frá frumbernsku til æðri menntunar, veitir mikilvæga vernd og þjálfun til að efla framtíðarmöguleika ungs flóttafólks sem hefur þurft að flýja heimili sín vegna stríðsátaka, ofbeldis og ofsókna. Engu að síður eru börn og ungmenni á flótta eftirbátar annarra jafnaldra sinna á öllum menntunarstigum, eins […]
-
UNHCR: Enn eitt met hefur verið slegið um fjölda landflótta fólks í heiminum. Stöðug fjölgun hefur verið í áratug
16.06.2022Þrátt fyrir nokkur merki um árangur hefur fleira fólki verið stökkt á flótta og hraðar en nokkru sinni fyrr. Úrræðum hefur ekki fjölgað að sama skapi.