UNHCR, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur að geyma yfirgripsmikil gögn og tölfræði um nauðungarflutninga, bæði hvað varðar tilteknar aðgerðir, ástand á heimsvísu og fjölda nauðungarfluttra einstaklinga. Efnið er aðgengilegt fyrir starfsfólk, ríkisstjórnir, samstarfsaðila, önnur mannúðar- eða þróunarsamtök, fræðafólk og almenning. Að auki gefur Flóttamannastofnunin út fjölda skýrslna – stundum í samvinnu með öðrum stofnunum eða samstarfsaðilum – sem eru mikilvæg verkfæri í baráttunni til að auka vitund um málefni flóttafólks.
Tölfræðilegt efni og gagnagáttir
Skýrsla um þróun á heimsvísu
Árleg tölfræðiskýrsla Flóttamannastofnunarinnar um nauðungarflutninga á heimsvísu, með tölum um flóttafólk, nauðungarflutta einstaklinga, hælisleitendur og ríkisfangslausar manneskjur.
Alþjóðleg skýrsla
Skýrslan birtir lykilniðurstöður og afrek UNHCR, þar með taldar upplýsingar um helstu flóttamannaaðstoð á heimsvísu.
Gagnagátt aðgerða
Birtir gögn, upplýsingar og fréttir um aðgerðir og yfirstandandi neyðarástand.
Global Focus-gáttin
Ein aðalgátt UNHCR fyrir styrktaraðila og aðra helstu samstarfsaðila, með yfirliti yfir aðgerðir, starfsemi og niðurstöður.
Gagnaleit endurbúsetu
Birtir gögn um endurbúsetu, þar á meðal upprunalönd, hælislönd og endurbúsetulönd. Gagnagáttin er uppfærð í hverjum mánuði.
Tölfræði um flóttafólk
Gagnabanki UNHCR um tölfræðileg þýði birtir opinber og viðurkennd gögn um viðkvæma hópa frá árinu 1951.
Annað efni
Refworld
Yfirgripsmikið safn lagalegra skjala og efnis, sögulegs og núgildandi, um vernd og önnur málefni tengd flóttafólki og brottfluttum einstaklingum.
Flóttamannasamningurinn frá 1951
Finndu samninginn, bókun hans og viðbótarupplýsingar um hann, mikilvægt lykilskjal sem myndar lagalegan grunn fyrir starfsemi UNHCR.
Aðrar skýrslur
Þú finnur fleiri tengla á skýrslur og upplýsingaskjöl UNHCR, til dæmis um endurbúsetu, fjölskyldusameiningu, ríkisfangsleysi o.fl. hér á síðu okkar fyrir landsvæði (á ensku).