Fréttatilkynning frá Fulltrúi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir Norðurlönd og Eystrasaltslönd.
Fulltrúi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir Norðurlönd og Eystrasaltslönd fagnar ákvörðun Íslands um að taka á móti allt að 15 berskjölduðum einstaklingum frá Lesbos í Grikklandi í kjölfar hinna hörmulegu eldsvoða í Moria, sem ollu heimilisleysi þúsunda hælisleitenda og flóttamanna, þar á meðal barna, fjölskyldna og annarra berskjaldaðra einstaklinga.
Ákvörðun Íslands er svar við formlegri beiðni um stuðning og samstöðu, þar á meðal frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, en Flóttamannastofnunin og Ísland ganga í bandalag ríkja sem hafa skuldbundið sig til að styðja Grikkland með því að taka á móti viðkvæmustu flóttamönnunum og hælisleitendum. Á þessu ári hafa yfir 1.000 hælisleitendur fengið nýja búsetu, en með hátt í 10.000 hælisleitendur á bráðabirgðasvæðinu við Lesbos og 4.000 fylgdarlaus börn í Grikklandi er þörfin fyrir viðbótarstuðning mikil.
„Ákvörðun Íslands mun ekki aðeins veita fjölda viðkvæmra fjölskyldna von og hjálp, hún mun einnig senda sterk skilaboð um stuðning til Grikklands. Það er uppörvandi að sjá lönd eins og Ísland koma fram og sýna evrópska samstöðu og Flóttamannastofnunin vonar að fordæmi Íslands geti hvatt aðrar þjóðir til hins sama, “ segir Henrik M. Nordentoft, fulltrúi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir Norðurlönd og Eystrasaltsríkin.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna bendir á að ákvörðun Íslands um búferlaflutninga bætist við þegar gildan endurbúsetukvóta. Þessi skuldbinding er mikilvæg vegna metfjölda nauðungarflutninga á heimsvísu og aukinnar þarfar á varanlegum lausnum fyrir viðkvæma flóttamenn, en fjöldi þeirra vex ár eftir ár.
Ennfremur hefur Ísland nýlega tilkynnt 20 milljóna króna framlag til aðgerða Flóttamannastofnunarinnar í Grikklandi. Þetta mun hjálpa Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna við að koma skjóli og aðstoð til þúsunda í neyð.
Þótt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna fagni neyðarviðbrögðum til stuðnings Grikklandi og þeim löndum sem hlutdeild eiga, hvetur hún hagsmunaaðila til að ganga lengra en sem nemur sértækum lausnum og kallar áfram eftir langtímalausnum. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna vonar að tillaga framkvæmdastjórnar ESB um sáttmála um búferlaflutninga og hæli reynist bráðnauðsynleg byrjun á betra og áreiðanlegra kerfi til verndar flóttamönnum.
Deila á Facebook Deila á Twitter